Frítt fyrir öryrkja og ellilífeyrisþega á Ísland - Sviss
KSÍ hefur ákveðið að bjóða öryrkjum og ellilífeyrisþegum ókeypis aðgang að leiknum Ísland – Sviss í undankeppni HM sem fram fer á Laugardalsvelli fimmtudaginn 26. september næstkomandi kl. 18:30.
Hægt verður að framvísa viðeigandi skírteinum við innganginn.
Miðasala á leikinn er í gangi í gegnum miðasölukerfi hjá midi.is.