Fjölmiðlafræðinemendur í heimsókn
Í liðinni viku heimsóttu nemendur úr FÁ höfuðstöðvar KSÍ og hlýddu á fyrirlestur um samskipti og þjónustu við fjölmiðla í tengslum við landsleiki, með áherslu á leiki á Laugardalsvelli. Um var að ræða hóp 15 nemenda í fjölmiðlafræði og kom hópurinn í fylgd Róberts Örvars Ferdinandssonar, kennara síns. Að fyrirlestrinum loknum fór hópurinn í kynnisferð um allt mannvirkið, þar sem öll aðstaða fjölmiðla var skoðuð gaumgæfilega.
Hluti hópsins sat fyrir á mynd í blaðamannafundarherberginu í kjallara Laugardalsvallar. Smellið á myndina til að stækka hana.