Miðasala á Noregur - Ísland - Frestur framlengdur til 11. október
Ísland mætir Noregi í undankeppni HM 2014, þriðjudaginn 15. október næstkomandi. Leikið verður á Ullevaal vellinum í Noregi og hefst leikurinn kl. 20:00 að staðartíma eða kl. 18:00 íslenskum tíma.
KSÍ hefur fengið miða hjá norska knattspyrnusambandinu fyrir íslenska áhorfendur og kostar miðinn 9.000 krónur. Panta þarf miða í síðasta lagi föstudaginn 11. október en athuga þarf að miðarnir geta selst upp fyrir þann tíma. Sendið tölvupóst á Ragnheiði Elíasdóttur (ragnheidur@ksi.is) með eftirfarandi upplýsingum:
- Nafn (á greiðanda)
- Kennitala
- Fjöldi miða
- Kreditkortanúmer
- Gildistími korts
Einnig er hægt að leggja inn á reikning: Kennitala: 700169-3679 - Reikningsnúmer: 101-26-700400 og sendið afrit af greiðslukvittun á: ragnheidur@ksi.is.