Ísland - Kýpur - Miðasala hefst á morgun
Mikill áhugi er fyrir leik Íslands og Kýpur í undankeppni HM sem fram fer á Laugardalsvelli, föstudaginn 11. október kl. 18:45. Þetta er síðasti heimaleikur Íslands í riðlakeppninni og hefst miðasala á leikinn á morgun, fimmtudaginn 12. september í gegnum miðasölukerfi hjá midi.is.
Að venju verður forsöluafsláttur og 50% afsláttur fyrir 16 ára og yngri og reiknast það af fullu verði. Einungis verður hægt að kaupa miða hjá http://www.midi.is/
Verðin eru eftirfarandi:
Ísland - Kýpur 11. október kl. 18:45 | ||
Fullt verð - Leikdagur | Forsöluverð | |
Rautt svæði | 4.000 kr. | 3.500 kr. |
Blátt svæði | 3.000 kr. | 2.500 kr. |
Grænt Svæði | 2.000 kr. | 1.500 kr. |