Úrskurður í máli Vatnaliljanna gegn Ými
Aga- og úrskurðarnefnd hefur úrskurðað í máli Vatnaliljanna gegn Ými vegna leik félaganna í 4. deild karla C riðli sem fram fór 24. ágúst síðastliðinn. Kært var á grundvelli þess að um ólöglega skipað lið væri um að ræða.
Í úrskurðarorðum kemur m.a. fram að Vatnaliljunum skuli dæmdur 0 - 3 sigur og skal Ýmir greiða 5.000 krónur í sekt.