A karla - Haukur Páll í hópinn
Lars Lagerbäck, landsliðsþjálfari, hefur bætt Hauki Páli Sigurðssyni, úr Val, inn í landsliðshópinn fyrir leikinn gegn Albaníu. Leikurinn fer fram á morgun, þriðjudaginn 10. september kl. 19:00, á Laugardalsvelli og er í undankeppni HM.
Þeir Emil Hallfreðsson og Gunnar Heiðar Þorvaldsson hafa þurft að draga sig úr hópnum vegna meiðsla og bætist því Haukur Páll í hópinn.