U19 karla - Öruggur sigur á Skotum
Strákarnir í U19 unnu jafnaldra sína frá Skotlandi örugglega í vináttulandsleik í dag en leikið var í Stirling. Lokatölur urðu 0 - 3 og hafði íslenska liðið tveggja marka forystu í leikhléi.
Kristján Flóki Finnbogason kom íslenska liðinu yfir á 37. mínútu og Oliver Sigurjónsson bætti við öðru marki úr vítaspyrnu á 40. mínútu. Það var svo Jón Ingason sem skoraði þriðja mark íslenska liðsins á 75. mínútu eftir glæsilega samleik íslenska liðsins. Þar við sat en þetta var annar vináttulandsleikur þjóðanna á þremur dögum, fyrri leiknum lauk með 1 - 1 jafntefli.