Mikið um að vera hjá landsliðunum okkar í september
Það verður mikið um að vera hjá landsliðum Íslands í knattspyrnu í september mánuði en þá eru 16 landsleikir á dagskránni. Strákarnir í U19 riðu á vaðið í gær þegar þeir léku vináttulandsleik gegn Skotum og leika þeir aftur gegn þeim á morgun en öll okkar landslið munu leika í september.
Fjörið verður líka nokkuð í október en þá eru 9 landsleikir á dagskránni.