Úrskurður í máli Tindastóls gegn Gróttu
Aga- og úrskurðarnefnd hefur úrskurðað í máli Tindastóls gegn Gróttu í leik félaganna í 3. flokki karla 7 manna sem fram 15. ágúst síðastliðinn. Kært var á grundvelli þess að um ólöglega skipað lið væri um að ræða hjá Gróttu.
Í úrskurðarorðum kemur fram að Tindastóli skuli dæmdur sigur, 0 - 3, og Grótta skuli greiða 5.000 krónur í sekt.