Færeyskir dómarar á leik Reykjavíkurfélaganna Víkings og Leiknis í 1. deild karla
Ransin N. Djurhuusmun dæma leik Víkings og Leiknis í 1. deild karla sem fram fer á morgun, þriðjudaginn 20. ágúst., á Víkingsvelli og hefst kl. 19:00. Ransin kemur frá Færeyjum eins og annar aðstoðardómaranna, Kristian Sofus Petersen. Þriðji maðurinn í þríeykinu er hinsvegar alíslenskur, Birkir Sigurðarson. Þessi dómaraskipti eru hluti af verkefni norrænu knattspyrnusambandanna um dómaraskipti.