Þróttur auglýsir eftir þjálfurum
Barna- og unglingaráð Knattspyrnudeildar Þróttar auglýsir eftir metnaðarfullum þjálfurum sem eru tilbúnir til að vinna skv. stefnu félagsins. Einnig er auglýst eftir markmannsþjálfurum.
Nýtt tímabil hefst í byrjun september og þá þurfa viðkomandi að geta hafið störf. Reynsla af þjálfarastörfum og þjálfaramenntun og/eða íþróttafræðimenntun skilyrði.
Áhugasömum er bent á að vera í sambandi við íþróttastjóra Þróttar á jakob@trottur.is eða í síma 580-5902.