Kristinn dæmir í Rúmeníu
Kristinn Jakobsson mun dæma leik Steua Búkarest frá Rúmeníu og Dinamo TIblisi frá Georgíu í þriðju umferð forkeppni Meistaradeildar UEFA. Leikið verður í Búkarest 6. ágúst næstkomandi og Kristni til aðstoðar verða þeir Sigurður Óli Þorleifsson og Birkir Sigurðarson. Varadómari verður Gunnar Jarl Jónsson.