Katrínar þætti Jónsdóttur lokið
Katrín Jónsdóttir hefur átt ótrúlegan feril með A landslið kvenna. Hún lauk honum með því að leiða liðið út á völlinn í Halmstad, í 8-liða úrslitum EM. Það er ótrúlegt til þess að hugsa að fyrsti leikur hennar af þeim 132 sem hún lék var árið 1994, eða áður en yngstu leikmennirnir í landsliðshópnum í dag voru fæddir. Takk fyrir allt, Kata!
Landsliðsferill Katrínar:
http://www.ksi.is/mot/motalisti/felagsmadur/?pLeikmadurNr=25924&pListi=4
Sif Atladóttir náði þeim áfanga í leiknum við Svía að leika sinn 50. landsleik og Guðbjörg Gunnarsdóttir lék sinn 25. leik gegn Þjóðverjum í riðlakeppninni.