• fim. 11. júl. 2013
  • Dómaramál

Þorvaldur dæmir í Wales

Þorvaldur Árnason
Thorvaldur-Arna

Þorvaldur Árnason verður í eldlínunni 17. júlí næstkomandi þegar hann dæmir leik The New Saints frá Wales gegn Legía Varsjá frá Póllandi í 2. umferð undankeppni Meistaradeildar UEFA. 

Leikið verður á Racecourse Ground í Wrexham en Þorvaldi til aðstoðar verða þeir Gunnar Sverrir Gunnarsson og Gylfi Már Sigurðsson.  Varadómari verður Magnús Þórisson.