Allir 23 leikmennirnir með á æfingu
A-landslið kvenna æfði í dag, þriðjudag, í fyrsta sinn eftir komuna til Svíþjóðar þar sem liðið tekur þátt í úrslitakeppni EM í annað sinn í röð. Allir 23 leikmennirnir í hópnum voru með á æfingunni, mikil keyrsla og greinilegt að hópurinn er vel stemmdur. Á miðvikudag verður æft á keppnisvellinum sjálfum.
Hlýtt og sólríkt er í Kalmar, þar sem fyrsti leikur Íslands fer fram á fimmtdag, gegn Norðmönnum. Áhugi fjölmiðla fyrir mótinu er mikill og voru fjölmargir blaða- og sjónvarpsmenn á æfingunni, frá Noregi, Svíþjóð og Íslandi, auk fréttaritara uefa.com.