Gunnar Jarl dæmir í Finnlandi
Gunnar Jarl Jónsson mun, þriðjudaginn 9. júlí, dæma leik TPS Turku frá Finnlandi og AS Jeunesse Esch frá Lúxemborg í fyrstu umferð undankeppni Evrópudeildar UEFA. Þetta er seinni viðureign liðanna en Jeunesse Esch vann fyrri leikinn, fremur óvænt, 2 - 0.
Aðstoðardómarar Gunnars í þessum leik verða þeir Frosti Viðar Gunnarsson og Birkir Sigurðarson og varadómari verður Örvar Sær Gíslason.