Opna NM U17 kvenna: Riðakeppninni lýkur í dag
Lokaleikir riðlakeppni á opna UM U17 kvenna fara fram í dag og fara leikirnir fram á Fylkisvelli og N1 vellinum í Sandgerði.
A-riðill
Holland og Þýskaland mætast í Sandgerði og hefst leikurinn kl. 12:30. Þjóðverjar eru í góðri stöðu í efsta sæti riðilsins og þurfa óvæntir hlutir að gerast svo að þær þýsku fari ekki í úrslitaleikinn. Finnar geta náð þeim að stigum en markahlutfall Þjóðverja er mun hagstæðara en jafntefli gulltryggir þeim efsta sætið í riðlinum og þar með sæti í úrslitaleiknum gegn Dönum.
Finnland og Ísland hefja svo leik kl. 16:30 í Sandgerði. Þessar þjóðir berjast um annað sæti riðilsins, ásamt Hollendingum, þó svo að Finnar eigi fræðilega möguleika á efsta sætinu. Finnar eru sem stendur í öðru sæti með þrjú stig en Holland og Ísland eru með eitt stig. Með sigri þá skýst Ísland upp fyrir Finna og í annað sætið að því gefnu að Holland nái ekki sigri í gegn Þjóðverjum. Það er því mikið undir hjá íslenska liðinu og stuðningur áhorfenda getur skipt sköpum. Báðir leikir dagsins í A riðli verða í beinni útsendingu á www.sporttv.is.
B-riðill
Noregur og Danmörk mætast í fyrri leik B-riðils sem hefst kl. 13:30 á Fylkisvelli. Þær dönsku hafa þegar tryggt sér efsta sæti riðilsins og þar með sæti í úrslitaleiknum. Noregur er sem stendur í öðru sæti með tvö stig en þurfa sigur til að gulltryggja sér annað sætið. Ef það mistekst hjá þeim þá geta Svíar eða Englendingar komist í annað sæti riðilsins.
Svíþjóð og England mætast kl. 16:30 á Fylkisvelli en báðar þessar þjóðir hafa eitt stig eftir tvo fyrstu leikina.
Leikir um sæti fara svo fram á laugardaginn og fara þeir fram í Reykjavík. Leikið verður á Valbjarnarvelli, Víkingsvelli, KR-velli og úrslitaleikurinn fer fram á Laugardalvelli.