A kvenna - 23 leikmenn valdir fyrir úrslitakeppni EM í Svíþjóð
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt 23 leikmenn sem skipa hópinn í úrslitakeppni EM í Svíþjóð. Mótið hefst 10. júlí en fyrsti leikur Íslands er degi síðar, 11. júlí, þegar liðið mætir Noregi í Kalmar.
Einn nýliði er í hópnum, Anna Björk Kristjánsdóttir úr Stjörnunni.
Leikir Íslands á EM:
· 11. júlí 2013 kl. 16:00 (14:00 ÍSLT) Noregur – Ísland Kalmar
· 14. júlí 2013 kl. 18:30 (16:30 ÍSLT) Ísland – Þýskaland Växjö
· 17. júlí 2013 kl. 16:00 (14:00 ÍSLT) Holland – Ísland Växjö
Íslenska liðið fer til Svíþjóðar 8. júlí og dvelur í Kalmar frá 8.-12. júlí. Liðið fer svo 12. júlí til Växjö og verður þar að minnsta kosti til 18. júlí.