A kvenna - Byrjunarliðið er mætir Dönum
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Dönum í vináttulandsleik kl. 16:00 í dag. Leikið verður í Viborg og er þetta síðasti leikur Íslands fyrir úrslitakeppni EM í Svíþjóð.
Byrjunarliðið:
Markvörður: Guðbjörg Gunnarsdóttir
Hægri bakvörður: Ólína G. Viðarsdóttir
Vinstri bakvörður: Hallbera Guðný Gísladóttir
Miðverðir: Katrín Jónsdóttir, fyrirliði og Glódís Perla Viggósdóttir
Tengiliðir: Sara Björk Gunnarsdóttir og Dagný Brynjarsdóttir
Hægri kantur: Rakel Hönnudóttir
Vinstri kantur: Hólmfríður Magnúsdóttir
Sóknartengiliður: Harpa Þorsteinsdóttir
Framherji: Margrét Lára Viðarsdóttir
Þess má geta að Rakel Hönnudóttir leikur í dag sinn 50. landsleik.
Fylgst verður með leiknum á Facebook síðu KSÍ beint frá Viborg.