U21 karla - Hópurinn kominn til Armeníu
Strákarnir í U21 karla eru komnir til Jerevan í Armeníu þar sem leikið verður við heimamenn í undankeppni EM, fimmtudaginn 6. júní. Liðið var komið á áfangastað í nótt eftir langt ferðalag og var tekinn göngutúr fyrri hluta dags en æft verður svo síðar í dag.
Aðstæður eru hinar ágætustu, en heitt er í Jerevan um 30 stiga hiti. Leikið verður á Hrazdan vellinum en hann tekur rúmlega 53.000 manns í sæti.
Þetta er fyrsti leikur Armena í riðlinum en Íslendingar lögðu Hvít Rússa á útivelli í fyrsta leik sínum.