Jóhann Gunnar að störfum í Ísrael
Jóhann Gunnar Guðmundsson verður næstu daga að störfum í Ísrael þar sem hann starfar í úrslitakeppni EM U21 karla. Keppnin fer fram dagana 5. - 18. júní en Jóhann verður fjórði dómari á opnunarleik keppninnar, Ísrael - Noregur.
Í A-riðli leika einnig, auk ofangreindra þjóða, England og Ítalía. Í B-riðli leika svo Þýskaland, Holland, Rússland og Spánn.