Opin æfing hjá karlalandsliðinu á mánudag
A landslið karla hefur nú þegar hafið undirbúning sinn fyrir leikinn mikilvæga gegn Slóveníu föstudaginn 7. júní, en liðin mætast þá í undankeppni HM 2014 á Laugardalsvellinum.
Mánudaginn 3. júní kl. 17:30 verður opin æfing á Víkingsvelli í Reykjavík og er stuðningsmönnum velkomið að mæta í Víkina til að fylgjast með æfingunni.
Æfingin er kjörið tækifæri fyrir eldheita stuðningsmenn til að hitta leikmennina, taka myndir og jafnvel krækja sér í eiginhandaráritanir (ekki gleyma að taka skriffæri og blöð eða annað til að skrifa á!).