Lukkupottur á kvennalandsleiknum á laugardag
Á vináttulandsleik kvennaliða Íslands og Skotlands á laugardag gefst miðakaupendum kostur á að taka þátt í sérstökum lukkuleik sem gefur möguleika á skemmtilegum vinningum. Leikurinn fer þannig fram að nafn, símanúmer og tölvupóstfang er skrifað aftan á aðgöngumiðann og honum skilað í sérstakan kassa í miðjum undirgöngum Laugardalsvallar. Kassinn er fallega rauður að lit og verður staðsettur við stóru andlitsmyndina í miðjum undirgöngunum fyrir leik og í hálfleik.
Vinningarnir eru spennandi og kannski svolítið óhefðbundnir:
- 2 x treyjur með eiginhandaráritunum allra leikmanna kvennalandsliðsins.
- Bíóferð með landsliðinu.
- Hádegisverður með landsliðinu.
Athugið að 16 ára og yngri fá frítt á leikinn og eru því ekki með miða, þannig að fullorðna fólkið verður að koma með og kaupa miða til að komast í pottinn!
Dregið verður úr vinningum strax eftir helgina og haft samband við vinningshafa.