Ísland - Skotland - Miðasala hefst kl. 14:00 á Laugardalsvelli
Kvennalandslið Íslands og Skotlands mætast í vináttulandsleik á Laugardalsvelli, laugardaginn 1. júní kl. 16:45. Þetta er síðasti heimaleikur íslenska liðsins áður en þær leika í úrslitakeppni EM í Svíþjóð í júlí.
Miðasala á leikinn er í fullum gangi í gegnum miðasölukerfi hjá http://www.midi.is/. Einnig verður hægt að kaupa miða á leikdag á Laugardalsvelli, frá kl. 14:00. Miðaverð er 1.000 krónur fyrir fullorðna en frítt er inn fyrir börn 16 ára og yngri.
Þetta er síðasti möguleikinn til að sjá stelpurnar í leik hér á landi áður en úrslitakeppnin hefst í sumar. Sendum þær á EM með góðan stuðning í farteskinu.
ÁFRAM ÍSLAND!