Ísland - Skotland - Dómari leiksins kemur frá Svíþjóð
Það verður hin sænska Sara Persson sem dæmir vináttulandsleik Íslands og Skotlands á Laugardalsvelli. Leikurinn fer fram laugardaginn 1. júní og hefst kl. 16:45. Aðstoðardómarar Söru verða Rúna Kristín Stefánsdóttir og Gylfi Már Sigurðsson. Fjórði dómari verður Áskell Þór Gíslason.
Miðasala á leikinn er í fullum gangi í gegnum miðasölukerfi hjá www.midi.is. Einnig verður hægt að kaupa miða á leikdag á Laugardalsvelli, frá kl. 14:00. Miðaverð er 1.000 krónur fyrir fullorðna en frítt er inn fyrir börn 16 ára og yngri.