Yngri iðkendum aðildarfélaga boðið á Ísland - Skotland
Eins og kunnugt er leikur íslenska kvennalandsliðið vináttulandsleik gegn Skotum, næstkomandi laugardag kl. 16:45 á Laugardalsvelli. Þetta er síðasti leikur liðsins á heimavelli fyrir úrslitakeppni EM sem fram fer í júlí í Svíþjóð. Frítt er á leikinn fyrir 16 ára og yngri og hvetjum við aðildarfélög til þess að skipuleggja hópferðir á leikinn.
Þau félög sem hyggjast skipuleggja ferð með yngri flokkum á leikinn eru vinsamlegast beðin um að senda póst á thorir@ksi.is með óskir um fjölda miða fyrir börn og fylgdarmenn/ábyrgðarmenn. KSÍ mun bjóða forráðamönnum yngri flokka frítt á leikinn en til þess að nýta sér þann möguleika er mikilvægt að eftirfarandi upplýsingar séu sendar:
Nafn félags
Flokkur
Fjöldi barnamiða
Fjöldi fullorðinsmiða
Miðarnir verða svo afhentir á skrifstofu KSÍ fram á hádegi á föstudag.
Aðildarfélög eru hvött til að nýta sér þennan möguleika og bjóða yngri flokkum sínum á þennan síðasta heimaleik hjá A landsliði kvenna.
Áfram Ísland!