A karla - Hópurinn sem mætir Slóvenum
Lars Lagerbäck, landsliðsþjálfari, hefur valið hópinn sem mætir Slóvenum í undankeppni HM á Laugardalsvelli, föstudaginn 7. júní kl. 19:00. MIðasala á leikinn er í fullum gangi og óhætt að segja að hún gangi vel fyrir þennan mikilvæga leik.
Þetta er fjórði landsleikur þjóðanna hjá A-landsliði karla og hafa Slóvenar unnið tvisvar en Íslendingar fóru með sigur af hólmi þegar þjóðirnar áttust við 22. mars síðastliðinn í Slóveníu.