A karla - Hópurinn gegn Slóvenum verður tilkynntur í dag
Í dag verður haldinn blaðamannafundur í höfuðstöðvum KSÍ þar sem Lars Lagerbäck, landsliðsþjálfari, mun tilkynna hópinn sem leikur gegn Slóvenum á Laugardalsvelli 7. júní í undankeppni HM. Fundurinn hefst kl. 13:15.
Miðasala á leikinn er í fullum gangi og gengur vel enda um gríðarlega mikilvægan leik að ræða í þessum jafna riðli Íslands. Fólk er því hvatt til þess að tryggja sér miða í tíma og er minnt á 500 króna forsöluafslátt ef keypt er fyrir leikdag. Þá er 50% afsláttur fyrir börn, 16 ára og yngri, og reiknast sá afsláttur af fullu verði.