Súpufundur KSÍ - Sigurður Ragnar fjallaði um leikjaálag ungra leikmanna
Súpufundur KSÍ, sá ellefti í röðinni, fór fram í hádeginu í gær í höfuðstöðvum KSÍ. Þar flutti Sigurður Ragnar Eyjólfsson, fræðslustjóri KSÍ og landsliðsþjálfari, hugleiðingar um leikjaálag hjá ungum leikmönnum.
Fundurinn var vel sóttur, rúmlega 50 manns mættu á staðinn og um 30 manns fylgdust með fyrirlestrinum á netinu. Hér að neðan má finna myndband frá súpufundinum og glærur Sigurðar Ragnars.