• fös. 10. maí 2013
  • Landslið

Miðasala er hafin á Ísland - Skotland

kvenna1
kvenna1

Laugardaginn 1. júní taka stelpurnar okkar á móti Skotum í vináttulandsleik á Laugardalsvelli og hefst leikurinn kl. 16:45.  Liðið undirbýr sig af kappi fyrir úrslitakeppni EM, sem hefst í Svíþjóð 10. júlí, og hér er um að ræða síðasta heimaleik stelpnanna fyrir stóru átökin í sumar.

Ísland og Skotland hafa mæst sjö sinnum áður í A-landsleik kvenna og hafa Íslendingar unnið fjórum sinnum, tvisvar hefur orðið jafntefli og í eitt skipti hefur sigurinn verið skoskur.  Fyrsti kvennalandsleikur Íslands var einmitt gegn Skotum árið 1981 og höfðu þær skosku þá 3 – 2 sigur.

Það er mikilvægt fyrir stelpurnar að finna góðan stuðning frá landsmönnum og senda þær með gott veganesti til Svíþjóðar.

Miðasala á leikinn er nú hafin og fer hún, sem fyrr, fram í gegnum miðasölurkerfi frá www.midi.is.  Miðaverð á leikinn er 1.000 krónur en frítt er inn fyrir börn 16 ára og yngri.

Minnt er á að einnig er í gangi miðasala á leik Íslands og Slóveníu í undankeppni HM karla 2014. 

Áfram Ísland!