Birkir að störfum í Slóvakíu
Birkir Sigurðarson er þessa dagana staddur í Slóvakíu þar sem hann starfar sem aðstoðardómari í úrslitakeppni EM U17 karla. Mótið hófst í gær og var Birkir aðstoðardómari á leik Króatíu og Ítalíu sem lauk með markalausu jafntefli.
Mótið heldur áfram á miðvikudaginn en úrslitaleikurinn fer fram 17. maí.