Albert Guðmundsson inn í Heiðurshöll ÍSÍ
Á 71. íþróttaþingi ÍSÍ, sem fram fór um helgina, var nöfnum þriggja einstaklinga bætt inn í Heiðurshöll ÍSÍ. Þeirra á meðal var Albert Guðmundsson og er hann fyrstur knattspyrnumanna sem hlýtur þessa viðurkenningu.
Stytta af Alberti var afhjúpuð fyrir framan höfuðstöðvar KSÍ í febrúar árið 2010 og í ávarpi við það tilefni sagði formaður KSÍ, Geir Þorsteinsson, meðal annars:
"Albert Guðmundsson varð fyrsti íslenski atvinnumaðurinn í knattspyrnu þegar hann skrifaði undir samning við franska 1. deildarfélagið Nancy 29. júlí 1947. Þegar horft er yfir knattspyrnusöguna er Albert að margra mati fremsti knattspyrnumaður Íslands frá upphafi og sá sem lengst hefur náð.
Albert ólst upp hjá Val, en lék síðar með ÍBH þegar hann snéri heim úr atvinnumennsku. Ferill Alberts erlendis er einkar glæsilegur – hann lék með Glasgow Rangers í Skotlandi, Arsenal í Englandi,Nancy í Frakklandi, AC Milan á Ítalíu, Racing Club í Frakklandi og að síðustu Nice í Frakklandi.
Albert var formaður KSÍ 1968 – 1973 og býr knattspyrnuhreyfingin enn að störfum hans á þeim vettvangi."