Vel sóttur súpufundur - Myndband
Það var góð mæting á súpufund KSÍ í gær en þar hélt doktor Viðar Halldórsson, félagsfræðingur, fyrirlestur um hvernig hægt er að vinna markvisst að þjálfun félagslegrar- og hugarfarslegrar færni yngri iðkenda á heildstæðan hátt.
Um 55 manns mættu á fundinn og nokkrir fylgdust með honum á netinu. Hér að neðan má sjá myndband frá fyrirlestrinum sem og glærur sem Viðar studdist við.