KSÍ er á Youtube!
KSÍ er komið á Youtube! Ætlunin er að setja þar inn myndbönd af ýmsu tagi sem geta gagnast öllu áhugafólki um knattspyrnu. Fyrst um sinn eru á síðunni myndbönd með auglýsingum sem leikmenn A-landsliðs kvenna léku í, sem ganga út á það að hvetja stelpur til að mæta á fótboltaæfingar. Skellið ykkur endilega á síðuna og kíkið á þessi myndbönd, virkilega áhrifamikil myndbönd og einlæg viðtöl við landsliðskonurnar.
Youtube síða KSÍ er aðgengileg af forsíðu ksi.is, en einnig er hægt að smella hér.