U16 karla - Byrjunarliðið gegn Norður Írum
Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U16 karla, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Norður Írum í dag á undirbúningsmóti UEFA sem fram fer í Wales. Leikurinn hefst kl. 16:00 að íslenskum tíma en þetta er annar leikur Íslands á mótinu en sigur vannst á Færeyingum í gær, 2 - 0. Á sama tíma töpuðu Norður Írar fyrir Wales, 0 - 1.
Byrjunarliðið:
Markvörður: Hörður Fannar Björgvinsson
Hægri bakvörður: Sverrir Bartolozzi
Vinstri bakvörður: Sindri Scheving
Miðverðir: Anton Freyr Hauksson og Darri Sigþórsson, fyrirliði
Tengiliðir: Daði Bærings Halldórsson og Alexander Helgason
Hægri kantur: Fannar Orri Sævarsson
Vinstri kantur: Ólafur Hrafn Kjartansson
Sóknartengiliður: Viktor Karl Einarsson
Framherji: Albert Guðmundsson
Eftir leikinn gegn Færeyingum í gær fengu strákarnir góða heimsókn upp á hótel en þangað mætti landsliðsfyrirliðinn, Aron Einar Gunnarsson, og borðaði með strákunum.