Ráðstefna landsdómara á mánudaginn
Næstkomandi mánudag mun fara fram Landsdómararáðstefna KSÍ en þar hittast landsdómarar í lokaundirbúningi fyrir verkefni sumarins. Þetta er einn af vorboðuðum í boltanum en keppni í Borgunarbikarnum hefst 1. maí og í Pepsi-deild karla 5. maí.
Farið er yfir ýmis mál á þessari ráðstefnu og má sjá dagskrána hér að neðan en landsdómarar hittust einnig í byrjun mars á tveggja daga ráðstefnu.
Dagskrá.
17:00-17:10 Setning.
Geir Þorsteinsson.
17:10-17:25 "Klippu"próf.
Gylfi Þór Orrason.
17:25-17:55 Hagnýt mál.
Birkir Sveinsson.
17:55-18:05 Kliðfundur.
18:05-18:35 Leikstjórn og einbeiting.
Kristinn Jakobsson.
18:35-19:05 Kvöldverður.
19:05-19:25 Breytingar á knattspyrnulögunum og fyrirmæli dómaranefndar 2013.
Gylfi Þór Orrason.
19:25-19:55 Heimboð til Englands í mars 2013.
Gunnar Jarl Jónsson og Frosti Viðar Gunnarsson.
19:55-20:05 Kliðfundur.
20:05-21:15 "Klippu"próf - umræður og niðurstöður.
Gylfi Þór Orrason.
21:15-21:30 Ráðstefnuslit.
21:30-22:00 Fundur í Félagi deildadómara.