U16 karla - Sigur gegn Færeyingum
Strákarnir í U16 hófu í dag leik á undirbúningsmóti UEFA og fer það fram í Wales. Mótherjar Íslendinga í dag voru Færeyingar og höfðu Íslendingar sigur, 2 - 0. Það var Óttar Magnús Karlsson sem skoraði bæði mörk Íslendinga og komu þau bæði í fyrri hálfleik.
Liðið verður aftur á ferðinni á morgun þegar leikið verður við Norður Íra. Hefst sá leikur kl. 16:00 að íslenskum tíma. Norður Írar töpuðu í dag gegn heimamönnum í Wales, 0 - 1.