Norskir dómarar á leik Svíþjóðar og Íslands
Það verða norskir dómarar sem verða við stjórnvölinn á vináttulandsleik Svíþjóðar og Íslands sem hefst kl. 15:00 að íslenskum tíma í dag. Monica Larson er dómari leiksins og nafna hennar, Monica Lokkeberg er annar aðstoðardómara. Hinn aðstoðardómarinn heitir Birgitta Solberg.
Búist er við um 3.000 áhorfendum á Myresjhö völlinn sem er glæsilegt mannvirki enda tekinn í notkun síðasta haust. Völlurinn sjálfur er í þokkalegu standi, lætur aðeins á sjá eftir slæma tíð í Smálönum upp á síðkastið.