A kvenna - Byrjunarliðið gegn Svíum
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Svíum í vináttulandsleik í dag. Leikið er á Myresjöhus vellinum í Växjo og hefst leikurinn kl. 15:00 að íslenskum tíma.
Byrjunarliðið:
Markvörður: Þóra B. Helgadóttir
Hægri bakvörður: Ólína G. Viðarsdóttir
Vinstri bakvörður: Hallbera Gísladóttir
Miðverðir: Katrín Jónsdóttir, fyrirliði og Glódís Perla Viggósdóttir
Tengiliðir: Sara Björk Gunnarsdóttir og Dagný Brynjarsdóttir
Hægri kantur: Fanndís Friðriksdóttir
Vinstri kantur: Dóra María Lárusdóttir
Framherjar: Rakel Hönnudóttir og Harpa Þorsteinsdóttir