A kvenna - Anna Björk og Þórdís inn í hópinn
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur valið þær Önnu Björk Kristjánsdóttur úr Stjörnunni og Þórdís Hrönn Sigfúsdóttur úr Breiðabliki í hópinn fyrir vináttulandsleik gegn Svíum. Leikið verður í Växjö á laugardaginn en þar leikur einmitt íslenska liðið tvo leiki í riðlakeppni EM í sumar.
Þær Anna og Þórdís koma í staðinn fyrir Hólmfríði Magnúsdóttur og Katrínu Ómarsdóttir sem drógu sig úr hópnum af persónulegum ástæðum.