Ólöglegur leikmaður hjá Keflavík
Í samræmi við greinar 9.1 og 11. 2 í reglugerð KSÍ um Deildarbikarkeppni karla hefur skrifstofa KSÍ staðfest að Haraldur Freyr Guðmundsson lék ólöglegur með Keflavík gegn Þrótti í Lengjubikar karla, þann 27. mars síðastliðinn.
Leikmaðurinn hlaut sína þriðju áminningu í leik Þórs og Keflavíkur 23. mars 2013 og átti því að taka út sjálfkrafa leikbann í næsta leik í samræmi við grein 8.2 í reglugerð KSÍ um deildarbikarkeppni karla 2013
Eru úrslit leiksins því skráð 3 - 0 og Keflavík er sektað um kr. 30.000.