A kvenna - Hópurinn sem leikur gegn Svíum í Växjo
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur valið 18 leikmenn til að mæta Svíum í vináttulandsleik í Växjo, 6. apríl næstkomandi. Leikið verður á sama velli og íslenska liðið leikur tvo leiki sína, gegn Þjóðverjum og Hollendingum, í úrslitakeppni EM í sumar.
Stutt er síðan þessar þjóðir mættust síðast en það var á Algarve mótinu fyrr í þessum mánuði. Þá unnu Svíar stórsigur, 6 - 1, en þjóðirnar hafa mæst tólf í skipti og hafa Svíar sigrað í tíu þessara leikja, einu sinni hefur orðið jafnt og Íslendingar hafa sigrað einu sinni.