Gunnar Jarl dæmir í Wales
Gunnar Jarl Jónsson mun dæma leik Wales og Moldavíu í undankeppni EM U21 karla en leikið verður í Llanelli í Wales á föstudaginn. Aðstoðardómarar Gunnars í leiknum verða þeir Frosti Viðar Gunnarsson og Gylfi Már Sigurðsson. Varadómari verður Vilhjálmur Alvar Þórarinsson.
Leikurinn er í 1. riðli undankeppninnar en auk fyrrnefndra þjóða leika í riðlinu England, Finnland, Litháen og San Marínó. Þetta er fyrsti leikurinn í undankeppni EM 2015 en íslenska U21 liðið verður í eldlínunni á föstudaginn þegar það mætir Hvít Rússum ytra.