U21 karla - Hópurinn gegn Hvíta Rússlandi
Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur valið hópinn sem mætir Hvíta Rússlandi í undankeppni EM 2015. Þetta er fyrsti leikurinn í riðlinum og verður leikið ytra, þriðjudaginn 26. mars. Þrír leikmenn eru í hópnum sem hafa ekki leikið áður með U21 liðinu.
Þessar þjóðir hafa mæst einu sinni áður í þessum aldursflokki en það var í úrslitakeppni EM í Danmörku árið 2011. Þá höfðu Hvít Rússar betur, 2 - 0.
Aðrar þjóðir í riðlinum eru: Armenía, Frakkland og Kasakstan.