Grískir dómarar á leik Slóveníu og Íslands
Það verður grískur dómarakvartett á leik Slóveníu og Íslands í undankeppni HM 2014, sem fram fer í Ljubljana næstkomandi föstudag. Eftirlitsmaður leiksins er írskur og dómaraeftirlitsmaðurinn kemur frá Færeyjum.
Dómari leiksins, Stavros Tritsonis, varð FIFA-dómari árið 2010. Hann kemur frá Aþenu og er hagfræðingur að mennt.
Starfsmenn leiksins
Dómari: Stavros Tritsonis (Grikkland)
Aðstoðardómari 1: Dimitrios Saraidaris (Grikkland)
Aðstoðardómari 2: Leonidas Vasileiadis (Grikkland)
Fjórði dómari: Michael Koukoulakis (Grikkland)
Dómaraeftirlitsmaður: Lassin Isaksen (Færeyjar)
Eftirlitsmaður leiksins: Pat Quigley (Írland)
Í beinni á RÚV
Viðureign Íslands og Slóveníu fer fram föstudaginn 22. mars og hefst kl. 17:00 að íslenskum tíma, og er í beinni útsendingu á RÚV.