U19 kvenna - Tap gegn Frökkum á La Manga
Stelpurnar í U19 töpuðu síðasta leik sínum af þremur á La Manga í gærkvöldi en leikið var við Frakka. Lokatölur urðu 2 - 0 fyrir Frakka sem leiddu með einu marki í leikhléi.
Frakkar voru heldur sterkari aðilinn í leiknum en íslenska liðið átti sína spretti, sérstaklega í fyrri hálfleik. Frakkar skoruðu fyrra markið 36. mínútu en fyrir það höfðu Íslendingar átt tvö fín færi. Í seinni hálfleik stjórnuðu Frakkar að mestu ferðinni og bættu við einu marki áður en yfir lauk. Sanngjarn sigur Frakka sem eru með gríðarlega sterkt lið í þessum aldursflokki.
Þetta var síðasti leikur Íslands af þremur í þessari ferð til La Manga. Sigur vannst á Hollandi, jafntefli við Skota og tap gegn Frökkum. Hópurinn kemur kem í dag en framundan er keppni í milliriðli EM í byrjun april. Leikið verður í Portúgal og, auk heimastúlkna, verður leikið gegn Finnum og Norður Írum.