Hundraðasti landsleikur Eddu Garðarsdóttur
Edda Garðarsdóttir lék í dag sinn 100. landsleik þegar Ísland mætti Kína á Algarve mótinu. Edda er næst leikjahæst allra landsliðskvenna, á eftir Katrínu Jónsdóttur og er þriðji íslenski landsliðsmaðurinn í knattspyrnu til að rjúfa 100 leikja múrinn. Sá þriðji er Rúnar Kristinsson sem lék 104 landsleiki.
Landsliðsferill Eddu hófst á Laugardalsvelli, 7. september 1997, þegar hún kom inn á sem varamaður fyrir Margréti Ólafsdóttur á 79. mínútu. Leikið var við Úkraínu og vannst 3 – 2 sigur í þessum fyrsta A landsleik Eddu. Tveimur árum áður lék hún sinn fyrsta U17 landsleik en alls urðu þeir leikir 5, hún lék einn U19 landsleik og 21 landsleik fyrir U21 landsliðið.
Í þessum 100 landsleikjum hefur Edda skorað fjögur mörk og kom fyrsta markið í leik gegn Bandaríkjunum, sem leikinn var í New York, árið 2004 og lyktaði með 4 – 3 sigri Bandaríkjanna.
Knattspyrnusambandið óskar Eddu innilega til hamingju með áfangann.