A kvenna - Byrjunarliðið gegn Kína
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Kínverjum í dag á Algarve mótinu. Leikurinn hefst kl. 15:00 að íslenskum tíma og er síðasti leikur Íslands í riðlakeppni mótsins en á miðvikudaginn verður leikið um sæti.
Byrjunarliðið:
Markvörður: Þóra Helgadóttir
Hægri bakvörður: Elísa Viðarsdóttir
Vinstri bakvörður: Ólína G. Viðarsdóttir
Miðverðir: Sif Atladóttir og Glódís Perla Viggósdóttir
Tengiliðir: Sara Björk Gunnarsdóttir, fyrirliði og Dóra María Lárusdóttir
Hægri kantur: Rakel Hönnudóttir
Vinstri kantur: Dagný Brynjarsdóttir
Sóknartengiliður: Harpa Þorsteinsdóttir
Framherji: Hólmfríður Magnúsdóttir
Breyting á byrjunarliði:
Fanndís Friðriksdóttir á við meiðsli að stríða og því mun hún ekki vera með. Í hennar stað kemur Elísa Viðarsdóttir.