U19 kvenna - Leikið við Skota í dag á La Manga
Stelpurnar í U19 leika í dag við Skota en um er að ræða vináttulandsleik sem fram fer á La Manga. Leikurinn hefst kl. 14:00 að íslenskum tíma og hefur Ólafur Þór Guðbjörnsson, landsliðsþjálfari U19 kvenna, tilkynnt byrjunarliðið fyrir leikinn.
Markvörður: Berglind Hrund Jónasdóttir
Varnarmenn: Bryndís Björnsdóttir, Sigríður Lára Garðarsdóttir, Guðrún Arnardóttir, og Ingunn Haraldsdóttir
Tengiliðir: Hugrún Elvarsdóttir, Andrea Rán Hauksdóttir, Anna María Baldursdóttir og Svava Rós Guðmundsdóttir
Sóknartengiliður: Hildur Antonsdóttir
Framherji: Aldís Kara Lúðvíksdóttir
Þetta er annar leikur íslenska liðsins á La Manga en liðið lagði Holland, 3 - 1, á miðvikudaginn. Sama dag lögðu Skotar Englendinga, 2 - 1.
Leikurinn hefst, sem áður segir, kl. 14:00 að íslenskum tíma og verður fylgst með helstu atriðum á Facebooksíðu KSÍ.