U19 kvenna - Jafntefli í markaleik
Stelpurnar í U19 kvenna léku í dag vináttulandsleik við Skota en leikið var á La Manga. Lokatölur urðu 4 - 4 eftir að íslenska liðið hafði leitt í leikhléi, 3 - 1.
Skotar komust yfir á 25. mínútu en þremur mínútum síðar jafnaði Anna María Baldursdóttir metin eftir darraðadans í vítateig Skota eftir hornspyrnu. Aðrar þrjár mínútu liðu og þá var Aldís Kara Lúðvíksdóttir búin að koma íslenska liðinu yfir. Það var svo á 43. mínútu sem að Svava Rós Guðmundsdóttir bætti þriðja marki Íslendinga við eftir góðan undirbúning Aldísar Köru.
Íslenska liðið leiddi í leikhléi, 3 - 1 en Skotar mættu grimmir til leiks í síðari hálfleiknum og með mörkum á 62. og 65. mínútu jöfnuðu þær metin. Þær komust svo yfir þegar um 5 mínútur lifðu leiks en með síðustu spyrnu leiksins, jafnaði Telma Þrastardóttir metin þegar hún vippaði laglega yfir markvörð Skota. Fjörugt 4 - 4 jafntefli því staðreynd.
Íslenska liðið leikur þriðja og síðasta vináttulandsleikinn í ferðinni á sunnudaginn þegar leikið verður við Frakka.